Viðtal Laxá við Gumma í veiðideild

Birt: 25/01 2010

Það eru ekki bara veiðileyfasalar sem nú eru á fullu að undirbúa sig fyrir sumarið, veiðibúðir landsins sanka nú að sér fjölbreyttu vöruúrvali fyrir sumarið og undirbúa sig fyrir komandi átök framundan. Stór hluti veiðinnar er jú að vera með réttu græjurnar. Í öllum veiðibúðum eru menn að störfum með mikla reynslu við árbakkann og oftar en ekki nýtur maður góðs af þekkingu þeirra. Guðmundur Guðmundsson hóf störf hjá Veiðideild Ellingsen í fyrra eftir áralangt starf með eigin verslun, heyrum hvað hann hefur að segja.




Hver er maðurinn?

Guðmundur Guðmundsson og starfar í veiðideild Ellingsen.

Sérsvið mitt er stangveiði. Hef stundað fluguveiði í 25 ár, kennt bæði fluguhnýtingar og köst, auk þess að vera með fluguveiðiskóla þar sem ég hef farið með fóllk í 2 til 3 daga veiðitúra, þetta hef ég unnið í samstarfi við aðra aðila.


Hvernig leggst sumarið framundan í þig?

Sumarið leggst mjög vel í mig, eins og alltaf.


Einhverjar breytingar hjá Ellingsen framundan?

Við bætum frekar í og vöruúrval mun eitthvað breytast til hins betra, við erum komnir með góð umboð því auk Loop þá erum við t.d. með ABU og Fenwick . Við munum stórbæta okkur í flugum og verðum örugglega með einn flottasta flugubar landsins í sumar, hvort heldur um er að ræða fyrir silungs eða laxveiði.


Hver verður vinsælasta flugan í sumar að þínu mati?

Það er erfitt að segja til um það, en ég á von á því að flugur eins og Haugur, Dimma og gul Krafla muni sækja á í flokki laxaflugna, í túpum verða það auðvitað Sunray og Snælda og G.S.P og Skógá munu auka vinsældir sínar. Í urriðaveiði mun Rindillinn verða hástökkvarinn í sumar en almennt í silungnum er aðalmálið að vera með gott úrval. Það er þó ein fluga sem ég er alltaf með í mínu boxi hvort heldur ég er að veiða silung eða lax og það er Black Ghost, hún veiðir allt.


Mikið hefur verið rætt um vörurnar frá Loop undan farið, hver er staðan á því?

Staðan hjá Loop er góð. Það eru að koma nýjar stangir, vöðlur og vöðlujakkar á þessu ári, það er verið að vinna gríðarlega gott starf hjá Loop og gæðin sett framar öllu.


Áttu þér uppáhaldsflugu, veiðisvæði?

Uppáhaldsflugan mín er sú fluga sem gefur best þann daginn sem ég er að veiða. En skemmtilegast finnst mér að veiða á litlar Hitch túpur sem og þurrflugu. Uppáhalds veiðisvæði mitt er Vatnsdalsá í Húnavatnsýslu, hvort heldur er silungs eða laxasvæði, Langá á Mýrum er líka frábær. En það eru margar fallegar og skemmtilegar ár sem ég hef ekki farið í ennþá, en stefni á að bæta úr því.


Hvað eru bestu stangirnar, hjólin, línurnar að þínu mati og af hverju?

Varðandi línur, þá eru flotlínurnar frá Loop lang bestu línurnar, sama má segja um tauma sem og sökktauma. Intermedia hægsökkvandi lína frá Fenwick ber af öðrum intermedialínum. Í sökklínum myndi ég líklega nota Scientific Anglers eða Loop, en reyndar hef ég ekki notað sökklínu í mörg ár. Bestu hjólin? Af þeim sem ég þekki þá eru það Optihjólin frá Loop. Hvað stangir varðar þá vil ég að þær vinni alveg niður í handfang og Opti sem og Gass stöngin frá Loop eru allt sem ég þarf, hef ekki ennþá prufað stöng sem á séns í þær og hef ég þó prufað margar. Ég vil frekar safna mér fyrir góðri stöng frekar en að vera með eitthvað drasl eða miðlungs gott.


Eitthvað að lokum?

Eitt af því sem gerir veiði svona skemmtilega að maður er endalaust að læra. Ég reyni að læra af öllum, líka þeim sem ég er að kenna.


Skrifa athugasemdir