Ellingsen bloggar

Birt: 22/01 2010

Jæja þá er verslunin Ellingsen komin með bloggsíðu. Nú nýlega skráðum við verslunina á Facebook og viðbrögðin hafa verið frábær og við eigum orðið marga góða vini þar. Í ljósi þeirrar velgengni langar okkur að bæta við enn einum samskiptamöguleika með því að opna bloggsíðu. Sumir spyrja kannski, hver er munurinn á fréttum á ellingsen.is og þessu bloggi? Jú, í mínum huga er stærsti munurinn sá að nú fáið þið tækifæri til að taka þátt í umræðunni. Bloggið býður líka uppá hina ýmsu fídusa eins og t.d skoðanakannanir sem okkur hlakkar mikið til að prófa með ykkur. Umfram allt verður bloggið á mannlegu nótunum og stemmingin meira í átt við samræður frekar en fréttatilkynningar.


Leikreglurnar

Ellingsen bloggið verður ekki eins og Villta Vestrið. Sá sem þetta skrifar og mun stjórna blogginu lifir í þeirri trú að hér sé hægt að halda uppi jákvæðri stemmingu án ærumeiðinga og niðurrifsstarfsemi. Það er þó ekki þannig að þeir sem hafa áhuga á að setja inn athugasemdir á bloggið hafi beinan aðgang í kerfið. Sá sem vill setja inn athugasemdir skal skrifa nafn og netfang(birtist ekki) sem eru aðgangsorð hans ef hann kýs að skrifa fleiri athugasemdir. Fyrstu athugasemdaskrif hvers og eins fara í bið og bíða þess að stjórnandi samþykki þau. Þegar stjórnandi hefur samþykkt fyrstu skrif fara næstu færslur beint inn án þess að þau þurfi að samþykkja. Ef stjórnandi metur það þannig að athugasemdafærsla sé ekki innan siðsamlegra marka áskilur hann sér þann rétt að eyða færslunni og jafnvel notanda líka.


Ég las eitt sinn í afgreiðslu hjá einu fyrirtæki, „Ef þú ert ánægður með þjónustu okkar láttu þá aðra vita, ef þú ert ekki ánægður láttu þá okkur vita“. Ég vona að það verði mottóið í þessu bloggi. Hafandi sagt það þá býð ég ykkur að senda athugasemdir eða kvartanir vegna vöru og/eða þjónustu á bjornk@ellingsen.is og þeim pósti verður svarað hið fyrsta. Hlakka til að blogga með ykkur.


Bestu kveðjur

Ellert


2 Athugasemdir

  1. Inga segir:

    Til hamingju með bloggsíðuna.
    Vil bara segja ykkur að ég hef einungis fengið góða þjónustu og góða vöru í Ellingsen.

    Vona að þið verðið til sem lengst.
    Kv. Inga

  2. Gerður segir:

    Alltaf gaman að koma í I Ellingsen.
    Gangi ykkur vel að blogga!

Skrifa athugasemdir