Litið við á þjónustuverkstæðið
Birt: 29/01 2010
Um áramótin var þjónustuverkstæði Ellingsen flutt í nýtt húsnæði að Vatnagörðum 12. Einnig voru ráðnir nýir starfsmenn enda hafa umsvif þjónustuverkstæðisins aukist til muna eftir að Ellingsen tók við nýjum umboðum. Það gekk á ýmsu þessa fyrstu daga í janúar en með áræðni tókst starfsmönnum þjónustuverkstæðisins að opna viðgerðarsal og taka á móti fyrstu tækjunum.
Eins og sést á myndunum sem fylgja þessum skrifum er nú verið að standsetja lager og móttöku varahluta. Húsakynnin eru eins og best verður á kosið eins og sést á myndunum. Smellið á eina af myndunum til að skoða þær allar stækkaðar í spilara og fléttið á milli þeirra með því að smella á ör til hægri á hverri mynd.
Klæðnaður skiptir máli í ferðamennsku
Birt: 28/01 2010
Þegar farið er í gönguferðir, styttri sem lengri ferðir er mikilvægt að hugsa um klæðnaðinn. Klæðnaður er jú það sem skiptir í raun mestu máli þegar kemur að útivist allan ársins hring. Að klæða sig “rétt” getur oft skipt sköpum ef óhöpp fjarri byggð eiga sér stað ásamt því að vera með sjálfsagðan öryggisbúnað svo sem áttavita ( og kunna á hann ), síma, fyrstu hjálpar poka með helstu plástrum og umbúðum. Svo eru öll þau þægindi sem við viljum skapa með réttum klæðnaði nauðsynlegt til að ánægjan við ferðalögin verða sem mest. Hér að neðan ætla ég að útskýra hugtökin “innstalag, miðlag og ystalag” sem við notum oft í sambandi við fatnað. Því peysa er ekki bara peysa.
Flokkur: Fatnaður, Ýmislegt | Efni: Ferðamennska, Föt, Gönguferðir, Gönguföt, Klæðnaður, Öndunarföt, Útivist, Útivistarföt, Vind og vatnsheld | Engar athugasemdir »
Notkun og uppsetning fellihýsa
Birt: 26/01 2010

Þegar kemur að því standsetja ferðatækið er gott að hafa örlitlar leiðbeiningar um það hvernig skuli bera sig að.
Í þessum bæklingi eru notkunarleiðbeiningar fyrir bæði Fleetwood og Aliner fellihýsi, hvernig eigi að umgangast þau, setja upp á vorin og ganga frá á haustin.
Gott er að prenta út bæklinginn og hafa hann við höndina þegar hans er þörf. Skoða bækling.
Einnig er vert að minnast á að gott er að setja ferðatækið tímanlega á þjónustuverkstæði ef viðgerðar á því er þörf fyrir sumarið. Hægt er að panta tíma hjá þjónustuverkstæði Ellingsen á netfangið halldor@ellingsen.is eða í síma 580 8510.
Viðtal Laxá við Gumma í veiðideild
Birt: 25/01 2010

Það eru ekki bara veiðileyfasalar sem nú eru á fullu að undirbúa sig fyrir sumarið, veiðibúðir landsins sanka nú að sér fjölbreyttu vöruúrvali fyrir sumarið og undirbúa sig fyrir komandi átök framundan. Stór hluti veiðinnar er jú að vera með réttu græjurnar. Í öllum veiðibúðum eru menn að störfum með mikla reynslu við árbakkann og oftar en ekki nýtur maður góðs af þekkingu þeirra. Guðmundur Guðmundsson hóf störf hjá Veiðideild Ellingsen í fyrra eftir áralangt starf með eigin verslun, heyrum hvað hann hefur að segja.
Hver er maðurinn?
Guðmundur Guðmundsson og starfar í veiðideild Ellingsen.
Sérsvið mitt er stangveiði. Hef stundað fluguveiði í 25 ár, kennt bæði fluguhnýtingar og köst, auk þess að vera með fluguveiðiskóla þar sem ég hef farið með fóllk í 2 til 3 daga veiðitúra, þetta hef ég unnið í samstarfi við aðra aðila.
Flokkur: Stangveiði | Efni: Loop, stangveiði, veiðiflugur | Engar athugasemdir »
Ellingsen bloggar
Birt: 22/01 2010
Jæja þá er verslunin Ellingsen komin með bloggsíðu. Nú nýlega skráðum við verslunina á Facebook og viðbrögðin hafa verið frábær og við eigum orðið marga góða vini þar. Í ljósi þeirrar velgengni langar okkur að bæta við enn einum samskiptamöguleika með því að opna bloggsíðu. Sumir spyrja kannski, hver er munurinn á fréttum á ellingsen.is og þessu bloggi? Jú, í mínum huga er stærsti munurinn sá að nú fáið þið tækifæri til að taka þátt í umræðunni. Bloggið býður líka uppá hina ýmsu fídusa eins og t.d skoðanakannanir sem okkur hlakkar mikið til að prófa með ykkur. Umfram allt verður bloggið á mannlegu nótunum og stemmingin meira í átt við samræður frekar en fréttatilkynningar.
Leikreglurnar
Ellingsen bloggið verður ekki eins og Villta Vestrið. Sá sem þetta skrifar og mun stjórna blogginu lifir í þeirri trú að hér sé hægt að halda uppi jákvæðri stemmingu án ærumeiðinga og niðurrifsstarfsemi. Það er þó ekki þannig að þeir sem hafa áhuga á að setja inn athugasemdir á bloggið hafi beinan aðgang í kerfið. Sá sem vill setja inn athugasemdir skal skrifa nafn og netfang(birtist ekki) sem eru aðgangsorð hans ef hann kýs að skrifa fleiri athugasemdir. Fyrstu athugasemdaskrif hvers og eins fara í bið og bíða þess að stjórnandi samþykki þau. Þegar stjórnandi hefur samþykkt fyrstu skrif fara næstu færslur beint inn án þess að þau þurfi að samþykkja. Ef stjórnandi metur það þannig að athugasemdafærsla sé ekki innan siðsamlegra marka áskilur hann sér þann rétt að eyða færslunni og jafnvel notanda líka.
Ég las eitt sinn í afgreiðslu hjá einu fyrirtæki, „Ef þú ert ánægður með þjónustu okkar láttu þá aðra vita, ef þú ert ekki ánægður láttu þá okkur vita“. Ég vona að það verði mottóið í þessu bloggi. Hafandi sagt það þá býð ég ykkur að senda athugasemdir eða kvartanir vegna vöru og/eða þjónustu á bjornk@ellingsen.is og þeim pósti verður svarað hið fyrsta. Hlakka til að blogga með ykkur.
Bestu kveðjur
Ellert
Flokkur: Ýmislegt | | 2 Athugasemdir »
